Í haust skrifaði ég um allar tilboðssíðurnar. Í dag eru fjórar virkar leiti: Dilar.is, Hopkaup.is, Aha.is og WinWin.is. Hinar fimm eru svosem í gangi en tilboðin eru stopul og óspennandi. Þær eru Kaupnet.is, Kaupmattur.is, Nemendafelagid.is, Magntilbod.is og Gæsin.is.
Íslenski markaðurinn er lítill þetta vita allir. Ég held að áður en þetta ár er úti þá verði ekki nema 3-4 síður eftir og þeim mun fækka ennfrekar, niður í 2-3. Ástæðan, það eru bara X mörg fyrirtæki á Íslandi sem eru tilbúin að veita svona afslátt. Veistu hversu pirrandi það er að fá símtal frá NÍU mismunandi aðilum að betla eins tilboð? Og þá eru ekki meðtalin allir þessir klúbbar eins og Einkaklúbburinn, 2 fyrir 1, World for 2, fyrirtækjasamningar, samningar við nemendafélög og allir hinir.
En vissuð þið að það eru FIMM smálánafyrirtæki á Íslandi. FIMM! Kredia kom fyrst á markaðinn fyrir um 2 árum, Hraðpeningar þar á eftir og á þessu ári hef ég orðið var við auglýsingar frá Smálán, Múla.is og 1909. Er ekki í lagi?
Og talandi um auglýsingarnar frá þessum fyrirtækjum. Mig langar til að gefa ykkur smá ráð. Auglýsingin frá Múla.is hljómar einhvernveginn svona: "Ekki taka lán fyrir pizzu, ekki taka lán fyrir buxum og ekki taka lán með SMS. Farðu á Múla.is og taktu lán þar!". Ok í alvörunni, ef þú ætlar að selja eitthvað, ekki byrja á því að segja fólki af hverju það ætti ekki að kaupa vöruna þína! Eftir að hafa hlustað á þá auglýsingu langar mig ennþá minna að taka svona lán. Og 1909: veljið ykkur eitthvað betra stef heldur en það sem þið endið auglýsingarnar ykkar á. Þetta er bara leiðinlegt og tacky.
Ég hef enga trú á því að það rúmist pláss fyrir fimm smálánafyrirtæki á markaðnum. Ætli Kredia.is og Hraðpeningar eigi ekki eftir að standa eftir í lok dags, þar sem þau eru orðin þekktust og greinilega með þokkalegt auglýsingabakland.
Þessi fyrirtæki hafa mætt harðri gagnrýni þar sem auglýsingar þeirra beinast að ungu fólki með enga reynslu af fjármálum. Nú síðast í vikunni birtist viðtal við unga stúlku sem hafði lent í vítahring smálánanna. Fjölmargir hafa kallað eftir sérstakri lagasetningu um þessi fyrirtæki. Orðum eins og okurvextir er hent í umræðuna og athugasemdakerfið á DV.is logar. Flestir vilja banna þetta og vísa til nágrannalandanna þar sem ungt fólk er skuldsett upp fyrir haus eftir að hafa lent í svipuðum "vítahring".
![]() |
| Hjalti frændi |
Þarf ekki bara að kenna þjóðinni að fara með peninga? Hvernig getur fullorðið fólk sem steypti heilu landi næstum því í gjaldþrot verið að öskra úlfur úlfur núna? Ekki lifa um efni fram, það á við um fullorðið fólk sem og unglinga. Hættið að væla og takið ykkur aðeins saman í skynseminni.
Kveðja
Hjalti frændi

Og hversu marga farsíma hefur þú selt fólki í kringum tvítugt á raðgreiðslum?
ReplyDeleteHefði ekki Hjalti frændi frekar átt að ráðleggja þeim að spara þar til þau eiga fyrir símanum frekar en að vefja sig í skuldanet næstu 12-24 mánuðina?
(ekki það að ég sé eitthvað að stilla mér upp sem stuðningsmaður smálánastarfsemi. mér finnst hún ómerkileg en á sama tíma finnst mér ótrúlegt að það finnist nægur fjöldi fólks til þess að versla við fyrirtækin og halda þeim á floti meðan þjónustan sem þeir bjóða er jafn mikið drasl og raun ber vitni)
P.S. þetta komment kerfi er ekki að dansa með Safari
Haha ekki reyna að snúa þessu yfir á mig kæri Jensen. Ég veit ekki betur en þau hafi keypt símann af fúsum og frjálsum vilja. Hvort það sé skynsamleg ákvörðun af þeirra hálfu skal látið ósagt.
ReplyDeleteHvað kommentakerfið varðar þá er ég að vinna í því að uppfæra þetta blogg í eitthvað fallegt og skemmtilegt vefumsjónarkerfi, eins og það á skilið