Hvað á maður eiginlega að vera að lesa?
Ert þú einn af þeim sem hefur virkilegan áhuga á því sem þú ert að læra og myndir vilja lesa þér meira til? Ertu kannski að fara að stofna fyrirtæki og vilt læra betur hvernig á að koma sér á framfæri? Eða ertu kannski að leita þér að frekari heimildum fyrir BS ritgerðina? Finnst þér kannski bara gaman að lesa? Hér eru nokkrar bækur sem gætu komið þér á sporið. Allir eftirfarandi titlar eru fáanlegir á Amazon.com, í kilju eða rafbókarformi. Einnig er hægt að fá suma þeirra sem hljóðbók.
A Random Walk Down Wall Street
Höfundur: Henning Malkiel – Prófessor við Princeton háskólann í Bandaríkjunum
Af hverju áttu að lesa hana? Malkiel fer í gegn um sögu hlutabréfa-markaðarins og fer yfir allar bólurnar í efnahagssögu heimsins. Hann segir að maður eigi að fjárfesta í virði, ekki skýjaborgum og horfa til fyrirtækja með rekstur á traustum grunni, ekki til loforða um himinháar fjárhæðir sem svo aldrei skila sér. Malkiel notar dæmi frá Bandaríkjunum sem sýna að sagan endurtekur sig alltaf, sama hversu margar kenningar og módel spretta fram. Fyrsta útgáfan kom út árið 1973 og hún hefur því staðist tímans tönn, enda eiga kenningar Malkiels eins vel við í dag og þá.Sjá á Amazon.
The New Rules of PR and Marketing
Höfundur: David Meerman Scott rithöfundur
Af hverju áttu að lesa hana? Markaðsfræðin sem kennd er í HÍ miðar því miður allt of lítið að því hvernig á að nota netið. New Rules kennir þér á mannamáli hvernig þú átt að ná athygli neytandans á netinu. Farið er yfir hvernig þú getur notað bloggsíður, samfélagsmiðla, leitarvélabestun og fleiri nýmiðla til að ná til hugsanlegra kaupenda. Hann fer yfir hvernig heimasíður eiga að vera uppbyggðar og notar skemmtilegar dæmisögur. Ef þú vilt ná árangri í markaðssetningu í dag þarftu að ná tökum á hefðbundnum miðlum eins og sjónvarpi og dagblöðum en líka rafrænni markaðssetningu. Þessi bók er frábær byrjun fyrir þá sem eru að þreifa sig áfram í markaðssetningu á netinu.Sjá á Amazon.
Losing My Virginity
Höfundur: Richard Branson milljarðamæringur
Af hverju áttu að lesa hana? Richard Branson fór aldrei í háskóla en er samt einn ríkasti maður veraldar. Hann á eyju, plötuútgáfu, flugfélag, geimflugfélag, farskiptafyrirtæki og svo áfram mætti lengi telja. Branson er fyrirmynd þeirra sem vilja gera eitthvað sjálfir en hafa ekkert fyrir sér nema dugnað og vilja. Þessi bók er mjög skemmtileg, skrifuð af milljarðamæringnum sjálfum og gefur skemmtilega innsýn inn í líf þessa nettgeðveika manns. Hann fjallar um viðskiptasigra, vonbrigði og samskipti við stjörnurnar. Einnig gefur hann innsýn inn í hvaða áhrif peningar geta haft á vináttu og ástarsambönd. Klárlega bók fyrir alla viðskiptafræðinema.Sjá á Amazon.
Predictably Irrational
Höfundur: Dan Ariely prófessor
Af hverju áttu að lesa hana? Hefurðu heyrt hugtakið „atferlishagfræði“ (e. Behavioral economics). Hvort sem svarið er já eða nei þá þarftu að lesa þessa bók. Dan Ariely er prófessor við MIT háskólann í Boston. Hann hefur frá unglingsaldri haft rosalegan áhuga á hegðun fólks, hvað mótar hugmyndir þess og hvernig við hugsum. Hann hefur gert fjöldan allan af rannsóknum til að styðja við kenningar sínar og er með virtari fræðimönnum í atferlishagfræði. Það merkilega er hvernig hann nálgast viðfangsefni sín út frá félagsfræðilegum forsendum og sálfræði, frekar en tölulegum upplýsingum. Viltu vita af hverju þú keyptir öll þessi föt sem þú notar ekki , bara vegna þess þau voru á útsölu? Lestu þá þessa.Sjá á Amazon.
Tipping Point: How little things Make a Big Difference
Höfundur: Malcolm Gladwell markaðsgúrú
Sjá á Amazon.
VIÐBÓT
Ég hef skrifað áður um allar þessar bækur nema Tipping Point. Sjá færslurnar Fólk er fífl, The New Rules of PR and Marketing, Losing My Virginity og Sjálfbærni í fjárfestingum.
Sem komment við nánast allar þessar bækur — ættu allir að lesa "Fooled by Randomness" eða "Black Swan" eftir Nassim Taleb. Bækurnar fjalla um hversu tilviljunarkenndir makaðirnir, og lífið sjálft, eru — og hvernig við getum notað það. Hún er þyngri en flestar bækur í þessum flokki einfaldlega vegna þess hversu radikal hugmyndir hann setur fram.
ReplyDeleteEinnig vil ég benda á bókina Buyology eftir Martin Lindstrøm sem fjallar um neuromarketing.
Ég var búinn að heyra af Black Swan. Dan Ariely hefur talað um hana ef mér skjátlast ekki.
ReplyDeleteHvað varðar Buyology, þá er hún í körfunni hjá mér á Audible as we speak. Ég mun sennilega taka hana næst